Laus störf
Sumarstörf 2010




Forsíða
Átján keppendur í upplestrarkeppni
miðvikudagur, 16. mars 2011

Hin árlega upplestrarkeppni í 7. bekk var haldin í Salnum 8. mars sl. Keppendur voru 18 frá 9 grunnskólum í Kópavogi. Sigurvegari að þessu sinni var Katrín Kristinsdóttir, Salaskóla. Í 2. sæti var Ingveldur Lúðvíksdóttir Gröndal, Snælandsskóla og í 3. sæti var Marta Andrésdóttir, Snælandsskóla.

Lesa meira...
 
Góð gjöf til Náttúrufræðistofunnar
mánudagur, 14. mars 2011
Guðríður Gísladóttir, Kópavogsbúi til margra ára, færði um daginn Náttúrufræðistofu Kópavogs að gjöf myndarlegt safn steina og kristalla sem hún og eiginmaður hennar, Haukur heitinn Einarsson, höfðu safnað víðs vegar að af landinu. Að sögn Hilmars J. Malmquist forstöðumanns Náttúrufræðistofunnar er góður fengur að gjöfinni.
Lesa meira...
 
Sýning um höfund þjóðsöngsins í Tónlistarsafninu
fimmtudagur, 10. mars 2011
Sýning um Sveinbjörn Sveinbjörnsson, tónskáld og höfund íslenska þjóðsöngsins, verður opnuð í Tónlistarsafni Íslands að Hábraut 2 í Kópavogi á laugardag. Kveikjan að sýningunni er sú að safninu hafa borist fjöldi muna frá Eleanor Oltean, barnabarni Sveinbjörns í Kanada, sem aldrei fyrr hafa komið almenningi fyrir sjónir.
Lesa meira...
 
Gönguskíðabraut á golfvellinum
miðvikudagur, 09. mars 2011

Búið er að troða gönguskíðabraut á golfvelli GKG í Vetrarmýri. Það voru starfsmenn þjónustumiðstöðvar Garðabæjar og GKG ásamt Dráttarbílum sem sameinuðust í þessu verkefni. Brautin er um 2,5 km að lengd og byrjar við áhaldahúsið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá GKG. Brautin verður opin eins lengi og veður leyfir.

 
Tónlistarskólar Kópavogs taka þátt í uppskeruhátíð
þriðjudagur, 08. mars 2011
Tónlistarskólarnir í Kópavogi verða með atriði á fortónleikum árlegrar uppskeruhátíðar tónlistarskóla landsins. Fortónleikarnir verða haldnir í tónleikasal FÍH í Rauðagerði laugardaginn 12. mars kl. 11:00, 13:00 og 14:30. Þar verða valin atriði til að taka þátt í lokatónleikum uppskeruhátíðarinnar 26. mars. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 8 af 843